Ný sending frá Alessandro Viola
Share
Ný sending frá Alessandro Viola er dottin í hús.
Nýir árgangar af Note Di Bianco, Rosé, Carricát og Trébíen. Einnig örlítil ábót af hinum sjaldgæfa 2022 árgangi af Sinfonia Di Bianco.
Trébíen er nýtt vín frá Alessandro, létt og skýjað úr Trebbiano þrúgunni. Þetta er létt gulvín það sem hvíldi á eigin skinni yfir nótt. Þetta tilraun með þrúgu frá meginlandi Ítalíu sem hefur fengið nýtt líf á Sikiley.
Vínin hans Alessandro eru okkar vinsælustu vín og því alltaf kærkomið þegar palletta skilar sér hingað alla leið frá vestur Sikiley.
Alessandro er mest þekktur fyrir hvítvínin sín og þá sérstaklega notkun hans á Catarratto. Víngerð hans er 500 metra yfir sjávarmáli og sleppur því þá miklu hita sem einkenna strendur Sikileyjar. Þegar hann keypti eigið land hafði hann það að leiðarljósi að leita vínekra sem var með sem elstan vínvið og gæti þar með sýnt fólki hversu frábær þrúga Catarratto er.
Vínin hans Alessandro eru sannkölluð bóndavín. Hann er á móti stóriðju í víngerð og leggur áherslu á náttúruna og "terroir".
Hér má sjá úrval okkar af Alessandro Viola
fyrirspurnir: haukur@pinot.is