Pinot Páskar!
Share
Við ætlum að bjóða uppá sannkallaða Búrgundar veislu þessa páska með fágætum vínum sem erfitt er að komast yfir.
Fyrst ber að nefna Paul Gayot sem ólst upp í hjarta vínekranna í Búrgúnd, djúpt sokkinn í víngerðarhefðir fjölskyldunnar frá unga aldri og alinn upp á vínekrum afa síns og ömmu. Hann hefur nú tekið yfir vínræktina og er einn af eftirsóttustu ungu framleiðendum í Búrgúnd.

Í fyrstu sendingu bjóðum við upp á 3 vín frá Paul Gayot:
100% Pinot Noir frá Côte de Beaune. Þetta er alvöru “terroir” Búrgundar Pinot Noir. Léttur en flókinn. Þetta passar með íslensku lambi, paté og góðum hvítum ostum. Aðeins 1800 flöskur framleiddar.
Verð 5298 kr.
Paul Gayot Chardonnay Sur Forets 2023
Elegant Chardonnay frá En Foret vínekrunni í þorpinu Pernand Vergelesses. Þetta er ferskt en í senn tilkomu mikið Búrgundar Chardonnay eins og þau gerast best í þessum verðflokki. Frábært með grilluðum kjúkling, fiski eða Comté osti.
Verð 5883 kr.
Paul Gayot Gevrey-Chambertin 2022
Gevrey Chambertin Pinot Noir eins og hann gerist bestur úr árgangi sem margir segja að það sé besti árgangur aldarinnar. Margslungið og flókið og tæklar villibráð, lambakjöt og grillað nautakjöt eins og enginn sé morgundagurinn.
Aðeins 600 flöskur framleiddar og eigum við aðeins örfáar. Þyrstir koma, þyrstir fá.
Verð 12.498kr

Hinn framleiðandinn í þessari sendingu eru rokklingarnir í La Chaume De Lies
Lothar Galloo og Margaux Rivaux kynntust fyrst árið 2018 þegar þau störfuðu fyrir Pierre Fenals hjá Maison En Belles Lies. Sameiginleg ástríðu þeirra fyrir víngerð leiddi til þess að þau ákváðu að skapa eitthvað sérstakt í hjarta Búrgúndar.
Eftir ítarlega leit fundu þau stað í fallega sveitarfélaginu Baubigny, rétt sunnan við Saint-Romain. Þar tryggðu þau sér kjallara á viðráðanlegu verði, sem bauð upp á að láta vín drauma sína rætast.
Þau byrjuðu á því að leigja 2,5 hektara af vínekrum víðsvegar um Saint-Aubin, Auxey-Duresses, Bouzeron, Hautes-Côtes de Beaune og aðra 2 hektara í Beaujolais. Margaux hafði unnið með Pierre Fenals að lífrænum ræktunaraðferðum frá árinu 2016 og Lothar öðlaðist reynslu hjá Bruno Schueller í Alsace og Didier Barral í Languedoc.
Vín þeirra eru án illgresiseyðis, skordýraeiturs eða tilbúinna efna og segjast þau samræma hvert skref vandlega við takt himintunglana þegar kemur að víngerðinni. Sameiginleg sýn þeirra og virðing fyrir landinu er kjarninn í víngerðaraðferðum þeirra.
Fyrir svona unga víngerð hafa niðurstöðurnar verið sannarlega áhrifamiklar. Þessi kraftmikla vinna skín í gegn í vínum þeirra, sem heilla skilningarvitin með einstöku handverki og karakter.
Þetta eru fágæt vín sem erfitt er að komast yfir og margir telja að verði meðal heitustu vínum nýrrar kynslóðar í Búrgúnd innan fárra ára.
Vínin sem við fengum núna eru:
Chaume de Lies Pinot Noir Bourgogne Hautes Côtes de Beaune 2023
Náttúrulegt Pinot Noir frá Cotes de Beaune. Fágað og með miklum karakter. Frábært eitt og sér en íslenskt lamb og hvítir ostar ættu að heilla það upp úr skónum.
Verð 6104
Chaume de Lies Aligoté Bouzeron Les Bouchines 2023
Þetta hvítvín endurspeglar glæsileika eina cru-vínsins í Búrgúnd sem er tileinkað Aligoté, ræktað á einstökum jarðvegum Bouzeron, sem liggja að Côte Chalonnaise og Côte de Beaune. Þetta er fágætt og sjaldgæft Aligóte.
Verð 5772kr
Allar pantanir og fyrirspurnir fara á pinot@pinot.is eða haukur@pinot.is.
Afhending 24.-27. mars.
